Bókin er skrifuð til að aðstoða fullorðna og börn á leikskólaaldri við að ræða saman á opinn og óþvingaðan hátt um leiðir til að vernda börn gegn ofbeldi. Meginmarkmið bókarinnar er að gera börn meðvituð um yfirráð þeirra yfir líkama
Þegar Rósa var Ragnar, þegar Friðrik var Fríða
Bókinni er ætlað að skapa umræður með ungum börnum um kynhlutverk og jafnrétti. Bókin samanstendur af tveimur sögum, sögunni um Friðrik og sögunni um Rósu sem vakna morgun einn sem gagnstætt kyn. Við fylgjumst með þeim einn dag, bæði heima
Þátttaka í lýðræði
Handbók ætluð kennurum. Kennsluáætlanir um lýðræðislega borgaravitund og mannréttindamenntun fyrir framhaldsskólastig.
Virðing og umhyggja – Ákall til 21. aldar
Fátt er mikilvægara en uppeldi og menntun æskufólks. Hér er athyglinni beint að því hlutverki uppalenda, einkum í skólastarfi, að rækta mikilvæg gildi í samskiptum fólks sem almenn samstaða ríkir um: Virðingu og umhyggju, vináttu og kærleika, réttlæti og umburðarlyndi.
Vinir Zippýs
Námsefni fyrir fimm til sjö ára börn um ráð til glíma við erfiðleika í daglegu lífi, tilfinningar og aðstoð við aðra. Leiðbeiningar og námskeið fyrir foreldra og kennara.
Vinátta
Forvarnarverkefni Barnaheilla gegn einelti. Efnið er ætlað leikskólum, fyrstu bekkjum grunnskóla ásamt dagforeldrum. Vinátta eða Fri for mobberi byggir á nýjustu rannsóknum á einelti og á ákveðinni hugmyndafræði og gildum sem skulu samofin öllu skólastarfinu auk raunhæfra verkefna fyrir nemendur, starfsfólk og
Verndum þau
Það er mikilvægt fyrir alla þá sem starfa með börnum og unglingum að vera meðvitaðir um skyldur sínar og ábyrgð. Þeir þurfa að geta lesið í vísbendingar um hvort vanræksla eða ofbeldi, hvort sem það er andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt,
Verndarar barna
Námskeiðið Verndarar barna er fræðsla í forvörnum og viðbrögðum við kynferðislegri misnotkun á börnum. Markmiðið er að veita fullorðnu fólki öfluga fræðslu og markvissa þjálfun í að fyrirbyggja, þekkja og bregðast við kynferðislegri misnotkun barna af festu og ábyrgð. Námsefnið
Verndum börn
Upplýsingar um ofbeldi á börnum, einkenni, afleiðingar og hvert er hægt að leita ef grunur vaknar um ofbeldi á barni. Samkvæmt Barnasáttmálanum skulu allir sem taka ákvarðanir fyrir börn taka mið af því sem er börnum fyrir bestu og þeir
Úr viðjum vanans
Þetta er B.Ed. verkefni Höllu Gunnarsdóttur frá Kennaraháskóla Íslands frá árinu 2002 og jafnframt fræðsla fyrir kennara og fólk sem starfar við uppeldismál. Í ritgerðinni er kynmótun og kynferðislegt ofbeldi tekið fyrir. Þar eru einnig hugmyndir að kennsluefni tengdu þessum