Verndum þau

Það er mikilvægt fyrir alla þá sem starfa með börnum og unglingum að vera meðvitaðir um skyldur sínar og ábyrgð. Þeir þurfa að geta lesið í vísbendingar um hvort vanræksla eða ofbeldi, hvort sem það er andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt, eigi sér stað og vita hvernig bregðast á við ef slík mál skjóta upp kollinum.

Í bókinni Verndum þau er fjallað um alla þessa þætti á aðgengilegan hátt og lesendur eru upplýstir um eðli og birtingarmyndir ofbeldis og vanrækslu, auk þess sem gerð er grein fyrir ferli mála af þessu tagi hjá barnaverndaryfirvöldum og innan dómskerfisins. Höfundar bókarinnar, Ólöf Ásta Farestveit uppeldis- og afbrotafræðingur og Þorbjörg Sveinsdóttir MSc í sálfræði, starfa í Barnahúsi. Verndum þau er bók er nauðsynleg bók fyrir þá sem starfa með börnum og unglingum, í skólum og íþrótta-, félags- og æskulýðsstarfi af öllu tagi.

Útgefandi
Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Æskulýðsvettvangurinn. (2013)
Hvað
Bók
Vefslóð
https://www.forlagid.is/vara/verndum-%C3%BEau-ny/
Fyrir
Starfsfólk
Verndum þau
Flokkað undir: