Þetta er líkami minn

Bókin er skrifuð til að aðstoða fullorðna og börn á leikskólaaldri við að ræða saman á opinn og óþvingaðan hátt um leiðir til að vernda börn gegn ofbeldi. Meginmarkmið bókarinnar er að gera börn meðvituð um yfirráð þeirra yfir líkama sínum og tilfinningum og að styrkja þau í að setja persónuleg mörk. Fjallað er um snertingu og hvernig hún getur bæði verið jákvæð og neikvæð. Það er á ábyrgð hinna fullorðnu að vernda börn gegn ofbeldi. Foreldrum, forsjáraðilum og öllum þeim sem vinna með börnum ber skylda til að vernda börn gegn ofbeldi í hvaða mynd sem er.

Samtökin eru í samstarfi við heilsugæslustöðvar um dreifingu á bókinni til foreldra. Starfsfólk heilsugæslustöðva getur pantað bókina á vefsíðu samtakanna.

Útgefandi
Barnaheill, Save the Children á Íslandi
Hvað
Bók
Vefslóð
https://www.barnaheill.is/is/forvarnir-og-fraedsla/annad-fraedsluefni/bokin
Fyrir
Leikskóli, Starfsfólk, Heimili - foreldrar
Þetta er líkami minn
Flokkað undir: