Handbók um mannréttindamenntun fyrir börn. Í bókinni eru 40 fjölbreytt verkefni sem þroska gagnrýna hugsun, ábyrgð og réttlætiskennd og stuðla að því að börn læri að grípa til aðgerða og leggja sitt af mörkum til hagsbóta fyrir skólann sinn og
Kompás
Handbók um mannréttindafræðslu fyrir ungt fólk. Hugmyndir og hagnýt verkefni með áherslu á jafnrétti og mannlega reisn.
Katla gamla
Leikin mynd um einelti og fyrirgefningu, með myndinni fylgja kennsluhugmyndir.
Hinn launhelgi glæpur
Hinn launhelgi glæpur er framlag til umræðu um kynferðisbrot gegn börnum og skerfur til frekari skilnings á orsökum þeirra og afleiðingum. Í bókinni er á þriðja tug greina, flestar ritrýndar, þar sem fjallað er um viðfangsefnið á forsendum ólíkra fræðigreina,
Gegn einelti
Skilaboð kvennalandsliðs Íslands í knattspyrnu gegn einelti – Fögnum fjölbreytileikanum.
Fáðu já!
Fáðu já! er 20 mínútna stuttmynd sem ætlar sér að skýra mörkin á milli kynlífs og ofbeldis, vega upp á móti áhrifum klámvæðingar, brjóta ranghugmyndir á bak aftur og innræta sjálfsvirðingu í nánum samskiptum. Leiðarvísir fyrir starfsfólk grunnskóla fylgir.
Ekkert barn á að alast upp við heimilisofbeldi
Myndband um heimilisofbeldi.
Einelti, helvíti á jörð
Heimildarmynd sem lýsir nöturlegri reynslu nokkurra einstaklinga af því að vera lagðir í einelti. Myndinni er ætlað að vekja áhorfandann til umhugsunar um alvarlegar afleiðingar eineltis og hve mikilvægt það er að koma fram við aðra eins og maður vill að komið
Býrð þú við ofbeldi?
Bæklingur sem fjallar um algengustu tegundir ofbeldis í nánum samböndum, meðal annars andlegt, líkamlegt, kynferðislegt og fjárhagslegt ofbeldi. Bæklingurinn er á íslensku, ensku og pólsku.
Barnahús – upplýsingarbæklingur
Barnahús sinnir málefnum barna sem grunur leikur á að hafi sætt kynferðislegri áreitni eða ofbeldi. Í þessum einblöðungi er fjallað um starfsemi Barnahúss, helstu markmið og þjónustu. Auk þess er farið yfir hvað á að gera ef grunur er um