Blátt áfram býður upp á námskeiðið Verndarar barna sem er fræðsla í forvörnum og viðbrögðum við kynferðisofbeldi á börnum. Námsefnið er fyrir fullorðna einstaklinga sem bera ábyrgð á umönnun og verndun barna; sínum eigin eða annarra. Stofnanir og félagasamtök sem bera ábyrgð á eða þjóna börnum og unglingum.
Einnig býður Blátt áfram upp á eftirfarandi fyrirlestra og hægt er að bóka þá með því að senda póst á netfangið [email protected].
Þá er í boði fræðslu- og umræðukvöld hjá Blátt áfram sem er einskonar hópastarf fyrir aðstandendur barna sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi.
Hægt er að bóka fræðslu fyrir lífsleiknitíma í skólum fyrir 7.-10.bekk eða krakka á aldrinum 13-16 ára í vinnuskólum landins.
Fræðslan er um forvarnir gegn kynferðisofbeldi og farið er yfir 5 skrefa bæklinginn og mikilvægi þess að leita sér hjálpar. Bókanir fara fram í gegnum netfangið [email protected]
Einnig er að finna teiknimyndina Leyndarmálið – segjum nei, segjum frá! en markmið hennar er að upplýsa börn um hvað kynferðislegt ofbeldi er og hvernig þau geti brugðist við slíkri ógn. Myndin er ætluð börnum í þriðja bekk.
Auk þess er að finna á síðunni ýmsar aðrar upplýsingar og verkfæri fyrir krakka, unglinga, foreldra og aðra sem starfa með börnum.
]]>
Meðal þess sem hægt er að finna á vefsíðunni eru upplýsingar um kynlíf, klám, birtingarmyndir ofbeldis, hvað einkennir heilbrigð sambönd og margt fleira. Þá eru einnig upplýsingar um jafnrétti og femínisma auk kafla um aktívisma.
Sjúk ást heldur einnig út facebook síðu en hana má finna hér.
Starfsfólk Stígamóta býður upp á Sjúkást fræðslu fyrir nemendahópa í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskólum. Þá er einnig boðið upp á fræðslu fyrir fólk sem vinnur með aldurshópnum 13-20 ára í æskulýðs-, íþrótta- eða skólastarfi sem og foreldra. Fyrir nánari upplýsingar og til að panta fræðslu skal senda tövupóst á netfangið [email protected]
]]>
Sexting (að skiptast á nektarmyndum) meðal barna og unglinga er sífellt meira í umræðunni, enda getur það haft alvarlegar afleiðingar. Rík þörf er fyrir vitundarvakningu – og upplýstir foreldrar eru besta forvörnin. Ef ekkert er aðhafst gætu fleiri börn lent í því að vera ber það sem eftir er á netinu.
Hrelliklám (einnig nefnt hefndarklám) er angi af sama meiði, en það er þegar nektarmyndum er dreift án samþykkis þess sem myndirnar eru af. Árið 2015 hélt Þórdís Elva Þorvaldsdóttir fyrirlestraröð fyrir foreldra í skólum víða um land þar sem fjallað var um sexting og hrelliklám undir yfirskriftinni „Ber það sem eftir er.“
Barnabókin Illi kall er gefin út af Máli og menningu í samstarfi við Barnaverndarstofu. Bókinni er ætlað að opna umræðu um áhrif heimilisofbeldis á börn og hjálpa fullorðnum í nærumhverfi barna til að ræða viðfangsefni hennar við börn.
Bókin á erindi við alla, fullorðna, unglinga og börn sem komin eru með þroska til að meðtaka viðfangsefni hennar. Boðskapur sögunnar er tvíþættur: Það er hægt að leysa jafnvel illviðráðanlegustu vandamál og lykillinn að lausn slíkra vandamála er ævinlega að segja frá.
Fyrir börn sem búa við heimilisofbeldi getur þessi vitneskja skipt sköpum.
Sagan fjallar um Boga sem býr með mömmu sinni og pabba.
Stundum liggur vel á pabba, þá hlær mamma og allt er gott. En stundum dregur pabbi dökku hlerana fyrir augun og harðlokar andlitinu. Þá vill Illi kall komast út og það er alveg sama hvað Bogi lofar að vera góður, Illi kall tekur völdin og allir sjá það nema pabbi. Á eftir er pabbi leiður og lofar að reiðast aldrei aftur. Boga finnst hann vera lokaður á bak við þúsund læstar dyr en á endanum finnur hann samt leiðina út – hann segir frá og pabbi fær hjálp.
Illi kall er íslensk útgáfa norsku verðlaunabókarinnar SINNA MANN
Samtökin eru í samstarfi við heilsugæslustöðvar um dreifingu á bókinni til foreldra. Starfsfólk heilsugæslustöðva getur pantað bókina á vefsíðu samtakanna.
]]>Í bókinni Verndum þau er fjallað um alla þessa þætti á aðgengilegan hátt og lesendur eru upplýstir um eðli og birtingarmyndir ofbeldis og vanrækslu, auk þess sem gerð er grein fyrir ferli mála af þessu tagi hjá barnaverndaryfirvöldum og innan dómskerfisins. Höfundar bókarinnar, Ólöf Ásta Farestveit uppeldis- og afbrotafræðingur og Þorbjörg Sveinsdóttir MSc í sálfræði, starfa í Barnahúsi. Verndum þau er bók er nauðsynleg bók fyrir þá sem starfa með börnum og unglingum, í skólum og íþrótta-, félags- og æskulýðsstarfi af öllu tagi.
]]>