Sexting (að skiptast á nektarmyndum) meðal barna og unglinga er sífellt meira í umræðunni, enda getur það haft alvarlegar afleiðingar. Rík þörf er fyrir vitundarvakningu – og upplýstir foreldrar eru besta forvörnin. Ef ekkert er aðhafst gætu fleiri börn lent í því að vera ber það sem eftir er á netinu.
Hrelliklám (einnig nefnt hefndarklám) er angi af sama meiði, en það er þegar nektarmyndum er dreift án samþykkis þess sem myndirnar eru af. Árið 2015 hélt Þórdís Elva Þorvaldsdóttir fyrirlestraröð fyrir foreldra í skólum víða um land þar sem fjallað var um sexting og hrelliklám undir yfirskriftinni „Ber það sem eftir er.“
1) Netið og samfélagsmiðlar, 2) Unglingarnir og netið, 3) Meir en 1000 orð: Það sem þú þarft að vita um #selfie og #sexting áður en það er of seint, 4) Jákvæð og örugg netnotkun barna og unglinga, 5) Að éta börnin sín – hugleiðingar um byltingu, 6) Netfíkn, 7) Bara 5 mínútur í viðbót.
]]>