Kynferðisofbeldi – Menntaklif http://www.menntaklif.is Tue, 23 Apr 2019 13:27:49 +0000 is hourly 1 https://wordpress.org/?v=5.2.5 /i0.wp.com/www.menntaklif.is/wp-content/uploads/2019/04/cropped-gardabaer-ico.png?fit=32%2C32&ssl=1 Kynferðisofbeldi – Menntaklif http://www.menntaklif.is 32 32 97296987 Blátt áfram – forvarnir gegn kynferðisofbeldi á börnum http://www.menntaklif.is/fraedsluyfirlit/blatt-afram-forvarnir-gegn-kynferdisofbeldi-a-bornum/ Fri, 05 Apr 2019 11:08:24 +0000 http://www.menntaklif.is/?p=1082 Blátt áfram vinnur að forvörnum gegn ofbeldi á börnum með fræðslu til fullorðinna, fjölskyldna og samfélagsins alls. Í fræðslunni er bent á áhrifaríkar aðferðir til að taka þau skref sem þarf til að vernda börn frá því að verða fyrir ofbeldi.

Blátt áfram býður upp á námskeiðið Verndarar barna sem er fræðsla í forvörnum og viðbrögðum við kynferðisofbeldi á börnum. Námsefnið er fyrir fullorðna einstaklinga sem bera ábyrgð á umönnun og verndun barna; sínum eigin eða annarra. Stofnanir og félagasamtök sem bera ábyrgð á eða þjóna börnum og unglingum.

Einnig býður Blátt áfram upp á eftirfarandi fyrirlestra og hægt er að bóka þá með því að senda póst á netfangið [email protected].

  • Hvernig má vernda börn gegn kynferðisobeldi? -Ætlaður fullorðnum sem vinna með börnum og unglingum en einnig foreldrum og öðrum sem bera ábyrgð á börnum.
  • Einkastaðir líkamans. -Ætlaður foreldrum.

Þá er í boði fræðslu- og umræðukvöld hjá Blátt áfram sem er einskonar hópastarf fyrir aðstandendur barna sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi.

Hægt er að bóka fræðslu fyrir lífsleiknitíma í skólum fyrir 7.-10.bekk eða krakka á aldrinum 13-16 ára í vinnuskólum landins.
Fræðslan er um forvarnir gegn kynferðisofbeldi og farið er yfir 5 skrefa bæklinginn og mikilvægi þess að leita sér hjálpar. Bókanir fara fram í gegnum netfangið [email protected]

Einnig er að finna teiknimyndina Leyndarmálið – segjum nei, segjum frá! en markmið hennar er að upplýsa börn um hvað kynferðislegt ofbeldi er og hvernig þau geti brugðist við slíkri ógn. Myndin er ætluð börnum í þriðja bekk.

Auk þess er að finna á síðunni ýmsar aðrar upplýsingar og verkfæri fyrir krakka, unglinga, foreldra og aðra sem starfa með börnum.

 

]]>
1082
Ber það sem eftir er: Sexting og hrelliklám http://www.menntaklif.is/fraedsluyfirlit/ber-thad-sem-eftir-er-sexting-og-hrelliklam/ Tue, 12 Apr 2016 00:55:47 +0000 http://www.menntaklif.is/?p=849

Sexting (að skiptast á nektarmyndum) meðal barna og unglinga er sífellt meira í umræðunni, enda getur það haft alvarlegar afleiðingar. Rík þörf er fyrir vitundarvakningu – og upplýstir foreldrar eru besta forvörnin. Ef ekkert er aðhafst gætu fleiri börn lent í því að vera ber það sem eftir er á netinu.

Hrelliklám (einnig nefnt hefndarklám) er angi af sama meiði, en það er þegar nektarmyndum er dreift án samþykkis þess sem myndirnar eru af. Árið 2015 hélt Þórdís Elva Þorvaldsdóttir fyrirlestraröð fyrir foreldra í skólum víða um land þar sem fjallað var um sexting og hrelliklám undir yfirskriftinni „Ber það sem eftir er.“

]]>
849
Ofbeldi gegn börnum – hlutverk skóla http://www.menntaklif.is/fraedsluyfirlit/ofbeldi-gegn-bornum-hlutverk-skola/ Sat, 09 Jan 2016 12:01:44 +0000 http://www.menntaklif.is/?p=655 Umfjöllunarefni þessarar handbókar er ofbeldi sem börn verða fyrir en markmiðið er að upplýsa kennara og annað starfsfólk skóla um einkenni og áhrif ofbeldis á börn og að vekja athygli á forvörnum, inngripi og úrræðum sem eru til staðar til að tryggja sem best velferð nemenda.

]]>
655
Fræðslumynd fyrir börn gegn kynferðislegu ofbeldi http://www.menntaklif.is/fraedsluyfirlit/fraedslumynd-fyrir-born-gegn-kynferdislegu-ofbeldi/ Tue, 17 Nov 2015 14:38:32 +0000 http://www.menntaklif.is/?p=628 Stýrihópur velferðarráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og innanríkisráðuneytis um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess, ásamt Barnaverndarstofu og Umboðsmanni barna hafa óskað eftir því við skólastjórnendur grunnskóla að sýna fræðslumyndina sem hér fylgir í skólum þann 18. nóvember 2015.

]]>
628
Örugg saman http://www.menntaklif.is/fraedsluyfirlit/orugg-saman/ Tue, 10 Nov 2015 16:25:52 +0000 http://www.menntaklif.is/?p=617 Fræðsluefni sem samanstendur af kennarahefti og nemendahefti. Örugg saman fjallar um andlegt, líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi í nánum samskiptum og hvernig megi bregðast við ef ofbeldi á sér stað. Efnið er byggt á bandaríska námsefninu Safe Dates. Örugg saman er fyrst og fremst ætlað nemendum í 9. og 10. bekk en gagnast framhaldsskólastigi sömuleiðis.

]]>
617
Þetta eru mínir einkastaðir http://www.menntaklif.is/fraedsluyfirlit/thetta-eru-minir-einkastadir/ Tue, 10 Nov 2015 16:15:58 +0000 http://www.menntaklif.is/?p=605 Bókin er um líkamann og heilbrigð samskipti. Frábært innlegg í forvarnarvinnu með börnum. Bókin hvetur einnig börn til að vera óhrædd við að segja frá að misnotkun hafi hún átt sér stað.

]]>
605
Samþykki er sexý http://www.menntaklif.is/fraedsluyfirlit/samthykki-er-sexy/ Tue, 10 Nov 2015 09:50:19 +0000 http://www.menntaklif.is/?p=532 Samþykkishópurinn (bæklingur). Samþykki er sexý, um mörk kynlífs og ofbeldis.

]]>
532
Sambönd og samskipti http://www.menntaklif.is/fraedsluyfirlit/sambond-og-samskipti/ Tue, 10 Nov 2015 09:34:55 +0000 http://www.menntaklif.is/?p=522 Greinar og upplýsingar um ýmislegt er varðar sambönd og samskipti ungmenna. Fjallað er um heilbrigð sambönd og einnig gefin góð ráð um hvernig best er að bregðast við þegar fólk lendir í alvarlegum erfiðleikum í samböndum við kærustu/kærasta eða sína nánustu.

]]>
522
Kynferðisleg hegðun barna, hvað er eðlilegt? http://www.menntaklif.is/fraedsluyfirlit/kynferdisleg-hegdun-barna-hvad-er-edlilegt/ Sat, 15 Aug 2015 22:30:41 +0000 http://www.menntaklif.is/?p=343 Bæklingur um það hvernig greina má á milli eðlilegrar kynferðislegrar hegðunar barna og óeðlilegrar. Í bæklingnum eru atriði sem vert er að hafa í huga þegar kemur að því að fylgjast með kynferðislegri hegðun barna á leikskólaaldri og þar til þau verða tíu ára gömul.

]]>
343
Hinn launhelgi glæpur http://www.menntaklif.is/fraedsluyfirlit/hinn-launhelgi-glaepur/ Sat, 15 Aug 2015 22:09:23 +0000 http://www.menntaklif.is/?p=319 Hinn launhelgi glæpur er framlag til umræðu um kynferðisbrot gegn börnum og skerfur til frekari skilnings á orsökum þeirra og afleiðingum. Í bókinni er á þriðja tug greina, flestar ritrýndar, þar sem fjallað er um viðfangsefnið á forsendum ólíkra fræðigreina, svo sem lögfræði, læknisfræði, hjúkrunarfræði, félagsfræði, sálarfræði, uppeldisfræði, afbrotafræði og félagsráðgjafar. Handbók fyrir alla sem starfa að málefnum barna og láta sig velferð þeirra varða.

]]>
319