Meðal þess sem hægt er að finna á vefsíðunni eru upplýsingar um kynlíf, klám, birtingarmyndir ofbeldis, hvað einkennir heilbrigð sambönd og margt fleira. Þá eru einnig upplýsingar um jafnrétti og femínisma auk kafla um aktívisma.
Sjúk ást heldur einnig út facebook síðu en hana má finna hér.
Starfsfólk Stígamóta býður upp á Sjúkást fræðslu fyrir nemendahópa í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskólum. Þá er einnig boðið upp á fræðslu fyrir fólk sem vinnur með aldurshópnum 13-20 ára í æskulýðs-, íþrótta- eða skólastarfi sem og foreldra. Fyrir nánari upplýsingar og til að panta fræðslu skal senda tövupóst á netfangið [email protected]
]]>
Sexting (að skiptast á nektarmyndum) meðal barna og unglinga er sífellt meira í umræðunni, enda getur það haft alvarlegar afleiðingar. Rík þörf er fyrir vitundarvakningu – og upplýstir foreldrar eru besta forvörnin. Ef ekkert er aðhafst gætu fleiri börn lent í því að vera ber það sem eftir er á netinu.
Hrelliklám (einnig nefnt hefndarklám) er angi af sama meiði, en það er þegar nektarmyndum er dreift án samþykkis þess sem myndirnar eru af. Árið 2015 hélt Þórdís Elva Þorvaldsdóttir fyrirlestraröð fyrir foreldra í skólum víða um land þar sem fjallað var um sexting og hrelliklám undir yfirskriftinni „Ber það sem eftir er.“
Grein um bókina á veftímaritinu Knúz
]]>Umfjöllunarefni nemendabókar mætti skipta í þrjá megin flokka:
– Sagt frá ýmsum hetjum í baráttunni fyrir jafnrétti.
– Reynslusögur barna um víða veröld, bæði sannar og skáldaðar.
– Útskýringar á félagsfræðilegum hugtökum sem notuð eru til að skilja jafnréttismál.
Ég, þú og við öll – Sögur og staðreyndir um jafnrétti
Ég, þú og við öll – Kennsluleiðbeiningar
]]>
Kennsluefni í jafnréttisfræðslu í leikskóla. Kynjahugmyndir leikskólabarna.
Markmið þróunarverkefnissins var þríþætt: Fyrir börnin: Að vinna með og efla jafnréttisvitund leikskólabarna. Fyrir kennara/skólann: Að efla vitneskju kennarar um leiðir og árangur af markvissri jafnréttis- og kynjafræðiumræðu. Fyrir skólasamfélagið: Að til verði leiðir í samþættri vinnu í jafnréttis- og kynjafræði fyrir leikskóla.
]]>Mikilvægt er að hinir fullorðnu kynni sér efni bókarinnar vel áður en hún er lesin fyrir börnin. Þeir sem ætla að nota bókina í jafnréttisstarfi með börnum þurfa að vera meðvitaðir um álitamálin ef bókin á að nýtast eins og til er ætlast.
Vefslóðir: