Meðal þess sem hægt er að finna á síðunni er fróðleikur um fjölskylduna, uppeldi, netnotkun, samfélagsmiðla og snjalltæki, samskipti, útlit, hegðun og líðan ásamt fleiru.
Þá er einnig að finna verkfærakistu fyrir grunnstig, miðstig og unglingastig með fjölda verkefna fyrir gagnrýna hugsun, núvitund & hugarró og sjálfsmynd.
Bekkjarsáttmálinn er opið skjal fyrir þá foreldra sem vilja taka höndum saman og samræma aðgerðir í uppeldi og eftirliti með börnum og unglingum nútímans og því ætlaður til þess að auðvelda foreldrum að framfylgja reglum. Helstu atriðin sem Sjálfsmynd mælir með að séu tekin fyrir í foreldrahópnum og sett fram í Bekkjarsáttmála eru aðgengi snjalltækja, miðlar og svefn & samskipti.
Samstarfsaðilar verkefnisins eru eftirfaradi: TVIST, Sálfræðingar Höfðabakka, Litla Kvíðameðferðarstöðin, Heimili og skóli, Samfélag, fjölskylda og tækni, Samtök um líkamsvirðingu og Núvitundarsetrið.
]]>
Sexting (að skiptast á nektarmyndum) meðal barna og unglinga er sífellt meira í umræðunni, enda getur það haft alvarlegar afleiðingar. Rík þörf er fyrir vitundarvakningu – og upplýstir foreldrar eru besta forvörnin. Ef ekkert er aðhafst gætu fleiri börn lent í því að vera ber það sem eftir er á netinu.
Hrelliklám (einnig nefnt hefndarklám) er angi af sama meiði, en það er þegar nektarmyndum er dreift án samþykkis þess sem myndirnar eru af. Árið 2015 hélt Þórdís Elva Þorvaldsdóttir fyrirlestraröð fyrir foreldra í skólum víða um land þar sem fjallað var um sexting og hrelliklám undir yfirskriftinni „Ber það sem eftir er.“