Fræðsluyfirlit – Menntaklif http://www.menntaklif.is Wed, 07 Aug 2019 14:42:08 +0000 is hourly 1 https://wordpress.org/?v=5.2.5 /i0.wp.com/www.menntaklif.is/wp-content/uploads/2019/04/cropped-gardabaer-ico.png?fit=32%2C32&ssl=1 Fræðsluyfirlit – Menntaklif http://www.menntaklif.is 32 32 97296987 Öflugir strákar http://www.menntaklif.is/fraedsluyfirlit/oflugir-strakar/ Wed, 07 Aug 2019 14:38:28 +0000 http://www.menntaklif.is/?p=1258 Öflugir Strákar er fyrirbyggjandi sjálfstyrkingarnámskeið fyrir stráka. Námskeiðin eru byggð á bókunum Strákar og Öflugir Strákar eftir Bjarna Fritzson.
Námskeiðin eru kennd í gegnum fyrirlestra, verkefnavinnu, upplifun og tjáningarleiki.
Nánari upplýsingar eru að finna hér.

 

 

]]> 1258 Stelpur geta allt http://www.menntaklif.is/fraedsluyfirlit/stelpur-geta-allt/ Wed, 07 Aug 2019 14:25:08 +0000 http://www.menntaklif.is/?p=1253 Stelpur geta allt eru fyrirbyggjandi sjálfstyrkingarnámskeið sem miða að því að styrkja þekkingu stelpna á hugtakinu sjálfsmynd ásamt því að leggja til leiðir sem þátttakendur geta notfært sér til þess að koma í veg fyrir neikvæða þróun á eigin sjálfsmynd.

Námskeiðin eru fyrir stelpur á aldrinum 7-15 ára.
Frekari upplýsingar eru að finna hér.

]]>
1253
Lífssögur ungs fólks: Samskipti, áhættuhegðun, styrkleikar http://www.menntaklif.is/fraedsluyfirlit/lifssogur-ungs-folks-samskipti-ahaettuhegdun-styrkleikar/ Mon, 13 May 2019 11:58:24 +0000 http://www.menntaklif.is/?p=1237 Bókin lífssögur ungs fólks byggist á viðamikilli langtímarannsókn Dr. Sigrúnar Aðalbjarnardóttur, prófessor í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands, þar sem kannaðir eru ýmsir þroskaþættir ungmenna frá upphafi unglingsára fram á þrítugsaldur. Sérstök áhersla er þar lögð á að skoða hvernig uppeldisaðferðir foreldra geta haft áhrif á samskiptahæfni ungmenna og líðan, sjálfstraust þeirra og trú á eigin sjálfstjórn, námsgengi og áhættuhegðun allt að átta árum fram í tímann.

Raktar eru áhugaverðar lífssögur fimm ungmenna frá því þau eru á sextánda ári og fram á fertugsaldur. Þar lýsa þau samskiptum sínum við þá sem þeim eru nánir: foreldra, vini, sambúðarfólk og eigin börn. Styrkleikar þeirra eru dregnir fram sem og uppeldissýn þeirra, meðal annars þau gildi sem þau vilja rækta með börnum sínum. Í þessari bók beinist athyglin að því mikilvæga hlutverki uppalenda að hlúa að vellíðan og velferð æskunnar.

 

]]>
1237
Blátt áfram – forvarnir gegn kynferðisofbeldi á börnum http://www.menntaklif.is/fraedsluyfirlit/blatt-afram-forvarnir-gegn-kynferdisofbeldi-a-bornum/ Fri, 05 Apr 2019 11:08:24 +0000 http://www.menntaklif.is/?p=1082 Blátt áfram vinnur að forvörnum gegn ofbeldi á börnum með fræðslu til fullorðinna, fjölskyldna og samfélagsins alls. Í fræðslunni er bent á áhrifaríkar aðferðir til að taka þau skref sem þarf til að vernda börn frá því að verða fyrir ofbeldi.

Blátt áfram býður upp á námskeiðið Verndarar barna sem er fræðsla í forvörnum og viðbrögðum við kynferðisofbeldi á börnum. Námsefnið er fyrir fullorðna einstaklinga sem bera ábyrgð á umönnun og verndun barna; sínum eigin eða annarra. Stofnanir og félagasamtök sem bera ábyrgð á eða þjóna börnum og unglingum.

Einnig býður Blátt áfram upp á eftirfarandi fyrirlestra og hægt er að bóka þá með því að senda póst á netfangið [email protected].

  • Hvernig má vernda börn gegn kynferðisobeldi? -Ætlaður fullorðnum sem vinna með börnum og unglingum en einnig foreldrum og öðrum sem bera ábyrgð á börnum.
  • Einkastaðir líkamans. -Ætlaður foreldrum.

Þá er í boði fræðslu- og umræðukvöld hjá Blátt áfram sem er einskonar hópastarf fyrir aðstandendur barna sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi.

Hægt er að bóka fræðslu fyrir lífsleiknitíma í skólum fyrir 7.-10.bekk eða krakka á aldrinum 13-16 ára í vinnuskólum landins.
Fræðslan er um forvarnir gegn kynferðisofbeldi og farið er yfir 5 skrefa bæklinginn og mikilvægi þess að leita sér hjálpar. Bókanir fara fram í gegnum netfangið [email protected]

Einnig er að finna teiknimyndina Leyndarmálið – segjum nei, segjum frá! en markmið hennar er að upplýsa börn um hvað kynferðislegt ofbeldi er og hvernig þau geti brugðist við slíkri ógn. Myndin er ætluð börnum í þriðja bekk.

Auk þess er að finna á síðunni ýmsar aðrar upplýsingar og verkfæri fyrir krakka, unglinga, foreldra og aðra sem starfa með börnum.

 

]]>
1082
Sjúk ást http://www.menntaklif.is/fraedsluyfirlit/sjukast/ Wed, 03 Apr 2019 13:49:10 +0000 http://www.menntaklif.is/?p=1078 Sjúk ást er forvarnarverkefni á vegum Stígamóta um ofbeldi í samböndum ungmenna. Verkefnið snýst um að fræða ungt fólk um mörk og samþykki og er markmiðið að ungmenni þekki muninn á heilbrigðum, óheilbrigðum og ofbeldisfullum samböndum.

Meðal þess sem hægt er að finna á vefsíðunni eru upplýsingar um kynlíf, klám, birtingarmyndir ofbeldis, hvað einkennir heilbrigð sambönd og margt fleira. Þá eru einnig upplýsingar um jafnrétti og femínisma auk kafla um aktívisma.

Sjúk ást heldur einnig út facebook síðu en hana má finna hér.

Starfsfólk Stígamóta býður upp á Sjúkást fræðslu fyrir nemendahópa í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskólum. Þá er einnig boðið upp á fræðslu fyrir fólk sem vinnur með aldurshópnum 13-20 ára í æskulýðs-, íþrótta- eða skólastarfi sem og foreldra. Fyrir nánari upplýsingar og til að panta fræðslu skal senda tövupóst á netfangið [email protected]

 

]]>
1078
Sterkari út í lífið http://www.menntaklif.is/fraedsluyfirlit/sterkari-ut-i-lifid/ Tue, 26 Mar 2019 22:02:08 +0000 http://www.menntaklif.is/?p=1073 Markmið verkefnisins er að auka aðgengi foreldra að efni sem ætlað er til að auðvelda samtöl um ýmislegt sem snýr að styrkingu sjálfsmyndar barna og unglinga og hægt er að nota heima við. Þá geta kennarar og annað fagfólk einnig nýtt sér efnið.

Meðal þess sem hægt er að finna á síðunni er fróðleikur um fjölskylduna, uppeldi, netnotkun, samfélagsmiðla og snjalltæki, samskipti, útlit, hegðun og líðan ásamt fleiru.
Þá er einnig að finna verkfærakistu fyrir grunnstig, miðstig og unglingastig með fjölda verkefna fyrir gagnrýna hugsun, núvitund & hugarró og sjálfsmynd.
Bekkjarsáttmálinn er opið skjal fyrir þá foreldra sem vilja taka höndum saman og samræma aðgerðir í uppeldi og eftirliti með börnum og unglingum nútímans og því ætlaður til þess að auðvelda foreldrum að framfylgja reglum. Helstu atriðin sem Sjálfsmynd mælir með að séu tekin fyrir í foreldrahópnum og sett fram í Bekkjarsáttmála eru aðgengi snjalltækja, miðlar og svefn & samskipti.

Samstarfsaðilar verkefnisins eru eftirfaradi: TVIST, Sálfræðingar Höfðabakka, Litla Kvíðameðferðarstöðin, Heimili og skóli, Samfélag, fjölskylda og tækni, Samtök um líkamsvirðingu og Núvitundarsetrið.

 

]]>
1073
Kroppurinn er kraftaverk: Líkamsvirðing fyrir börn http://www.menntaklif.is/fraedsluyfirlit/kroppurinn-er-kraftaverk-likamsvirding-fyrir-born/ Tue, 26 Mar 2019 12:50:34 +0000 http://www.menntaklif.is/?p=1070 Kroppurinn er kraftaverk er bók fyrir börn á aldrinum þriggja til sjö ára sem var skrifuð í von um að efla heilbrigða líkamsmynd barna og virðingu fyrir fjölbreytileikanum. Bókin hefur að geyma fjögur grundvallaratriði í tengslum við líkamsvirðingu: líkamsvitund, umhyggju fyrir líkamanum, væntumþykju í hans garð og virðingu fyrir fjölbreytileika.

]]>
1070
Ber það sem eftir er: Sexting og hrelliklám http://www.menntaklif.is/fraedsluyfirlit/ber-thad-sem-eftir-er-sexting-og-hrelliklam/ Tue, 12 Apr 2016 00:55:47 +0000 http://www.menntaklif.is/?p=849

Sexting (að skiptast á nektarmyndum) meðal barna og unglinga er sífellt meira í umræðunni, enda getur það haft alvarlegar afleiðingar. Rík þörf er fyrir vitundarvakningu – og upplýstir foreldrar eru besta forvörnin. Ef ekkert er aðhafst gætu fleiri börn lent í því að vera ber það sem eftir er á netinu.

Hrelliklám (einnig nefnt hefndarklám) er angi af sama meiði, en það er þegar nektarmyndum er dreift án samþykkis þess sem myndirnar eru af. Árið 2015 hélt Þórdís Elva Þorvaldsdóttir fyrirlestraröð fyrir foreldra í skólum víða um land þar sem fjallað var um sexting og hrelliklám undir yfirskriftinni „Ber það sem eftir er.“

]]>
849
Jafnréttisbaráttan – kennsluefni fyrir eldri nemendur í grunnskóla http://www.menntaklif.is/fraedsluyfirlit/jafnrettisbarattan-kennsluefni-fyrir-eldri-nemendur-i-grunnskola/ Tue, 12 Apr 2016 00:32:50 +0000 http://www.menntaklif.is/?p=844 Kennsluefnið er ætlað efri bekkjum grunnskóla 5.-10. bekk. Það samanstendur af sex æfingum og einu hópverkefni og hver æfing stendur sjálfstætt og því er frjálst að velja og nýta eitt verkefni. Stök æfing gæti átt heima í námsgreinum eins og samfélagsfræði, sögu, íslensku og stærðfræði. Séu verkefnin tekin saman standa þau sem heilt kynjafræðinámskeið sem hefst á sex æfingum sem allar miða að því að æfa nemendur í að geta unnið að hópverkefni sem ber heitið „Þetta er ekki æfing“. Hópvinnuaðferðina má kynna sér í Litrófi kennsluaðferðanna (2013) undir heitinu efniskönnun í vinnuhópum. Kjarninn í hópverkefninu er að nemendur starfi saman að því að gera verkefni sem þeim finnst mikilvægt. Nemendur eiga að reyna að hafa áhrif á umhverfi sitt og beyta sjálfstætt þeim verkfærum sem æfingarnar hafa látið þeim í hendur.

]]>
844
Alls kyns um kynferðismál http://www.menntaklif.is/fraedsluyfirlit/alls-kyns-um-kynferdismal/ Fri, 18 Mar 2016 18:36:03 +0000 http://www.menntaklif.is/?p=828 Í þessari teiknuðu stuttmynd er fjallað um ýmsar hliðar kynferðismála. Rætt er um hugtök eins og kyn, kynvitund, kynhneigð og kynlíf. Myndin er einkum ætluð 13–15 ára nemendum. Hún er einnig til textuð.

]]>
828